Hafa samband

Hvernig getum við aðstoðað?

Hringdu í skiptiborðið, sendu okkur línu eða kíktu í næstu verslun. Skrifstofan er opin frá 08:00 til 16:00 alla virka daga.

Sendu okkur skilaboð

Starfsmaður okkar reynir að svara þér eins fljótt og auðið er.

Skrifstofa: Penninn ehf., Smáratorg 3, 201 Kópavogur

Sýnishorn: formið sendir ekkert.

Algengar spurningar

Svörin sem flestir leita að

Hvað er opið lengi?

Opnunartíma allra verslana má sjá á síðunni Verslanir.

Hvar er mest úrval af íslenskum bókum?

Stærstu íslensku deildirnar okkar eru í Austurstræti, á Akureyri, í Kringlunni og Smáralind.

Hvar er mest úrval af erlendum bókum?

Stærsta deild erlendra bóka er í Austurstræti. Einnig er mikið úrval á Akureyri, í Kringlunni og Smáralind.

Hvar er mest úrval af ferðatöskum?

Penninn Eymundsson selur ferðatöskur í öllum sínum verslunum. Stærstu töskudeildirnar eru í Hallarmúla 4, Kringlunni og Smáralind.

Hvar er skiptibókamarkaðurinn?

Skiptibókamarkaðurinn er á Akranesi, Akureyri, í Austurstræti, Hafnarfirði, á Ísafirði, í Keflavík, Kringlunni, Smáralind og Vestmannaeyjum. Mest úrval er í Austurstræti, Hafnarfirði, Kringlunni og Smáralind.

Get ég skilað vöru?

Skilafrestur er 14 dagar. Vöru í upprunalegu ástandi með óskemmdum umbúðum má skila gegn framvísun kassakvittunar. Rafbókum og öðrum rafrænum vörum er ekki hægt að skila og flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara?

Sé vara gölluð bjóðum við ávallt nýja vöru í staðinn endurgjaldslaust. Sé þess krafist endurgreiðum við vöruna.

Hversu hár er sendingarkostnaður?

Sendingarkostnaður reiknast út frá gjaldskrá Póstsins í greiðsluferli. Fyrirtæki í reikningsviðskiptum greiða fast verð 2.500 kr., en sendingarkostnaður fellur niður ef pantað er fyrir meira en 30.000 kr.

Hvenær kemur sendingin til mín?

Við reynum eftir fremsta megni að koma pöntunum einstaklinga í póst samdægurs eða næsta virka dag. Pakkar eru að jafnaði 2-3 virka daga á leiðinni. Starfsmenn Pennans keyra út pakka til fyrirtækja frá 08:00-13:00.

Ég þarf afrit af reikningum

Hafðu samband við okkur og við sendum afrit af reikningi eða hreyfingalista.

Skilareglur

14 daga skilafrestur

  1. Við vöruskil skal framvísa kassakvittun eða sýna fram á að varan sé með gjafamiða.
  2. Vara skal vera í upprunalegu ástandi, umbúðir og vara óskemmd og fylgihlutir með.
  3. Innan 14 daga er varan endurgreidd samkvæmt kassakvittun. Eftir 14 daga, eða með gjafamiða, er gefin út inneignarnóta sem gildir í eitt ár.
  4. Skilaréttur gildir ekki um útsöluvörur, sérpantaðar vörur, rafbækur eða aðrar rafrænar vörur.
✓ fór í körfuna