Fyrsta bókabúðin á Íslandi
Þann 29. nóvember 1872 opnaði Sigfús Eymundsson fyrstu bókaverslunina á Íslandi, á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Sigfús hafði numið bókband í Kaupmannahöfn og opnaði fyrstu ljósmyndastofuna í Reykjavík árið 1867.

Þann 29. nóvember árið 1872 opnaði athafnamaðurinn Sigfús Eymundsson fyrstu bókaverslunina á Íslandi. Bókaverslunin naut frá upphafi mikils trausts og virðingar og setti mark sitt á bæjarlífið.
Þann 29. nóvember 1872 opnaði Sigfús Eymundsson fyrstu bókaverslunina á Íslandi, á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Sigfús hafði numið bókband í Kaupmannahöfn og opnaði fyrstu ljósmyndastofuna í Reykjavík árið 1867.

Sigfús hóf bókaútgáfu árið 1886. Hann var fyrstur til að flytja inn peningaskápa, sjálfblekunga og ritvélar og fyrstur til að selja póstkort á Íslandi, með ljósmyndum sem hann tók sjálfur.

Pétur Halldórsson tók við versluninni 1909 og árið 1920 færði hann hana í steinhúsið að Austurstræti 18, í hjarta borgarinnar, þar sem hún stendur enn í dag.
Baldvin Pálsson Dungal stofnaði Pappírs- og ritfangaverslunina Pennann ásamt bróður sínum Halldóri, í Ingólfshvoli á horni Pósthússtrætis og Hafnarstrætis. Fáir spáðu fyrirtækinu langlífi í skugga heimskreppunnar.

Bókaverslunin í Austurstræti var sannkallað menningarsetur í miðri borg. Árið 1960 var hún komin aftur á sinn gamla reit í nýju húsi að Austurstræti 18.

Í apríl 1996 keypti Penninn, með Gunnar B. Dungal í fararbroddi, verslanir Eymundsson. Tveimur árum síðar varð til eitt ástsælasta bókakaffi landsins í Austurstræti 18.
Á árunum 2014-16 voru allar verslanir fyrirtækisins sameinaðar undir vörumerki Pennans Eymundsson og verslanir endurbættar í Leifsstöð, Mjódd og Smáralind.
Penninn rekur 16 verslanir um land allt undir nafninu Penninn Eymundsson, auk húsgagnaverslunar, fyrirtækjaþjónustu og heildverslunar. Nýjasta viðbótin í vöruúrvalinu eru gjafavörur og húsgögn frá danska fyrirtækinu HAY.
Penninn rekur 16 verslanir undir nafninu Penninn Eymundsson, húsgagnaverslun, fyrirtækjaþjónustu og heildverslun. Jafnframt rekur Penninn þrjár ferðamannaverslanir undir nafninu The Viking og eina undir nafninu Islandia.
Penninn er heildsali ritfanga, pappírsvara, myndlistarvara, ferðavara og gjafavara fyrir margar af stærstu verslunum landsins, með vörur frá Esselte, Leitz, Winsor & Newton, Crayola, Staedtler, Pentel og fleirum.
Fyrirtækjaþjónusta →